Svengir son í
lifrarkæfu
faðir gleðst og smyr
kæfuhjúp á
brauði tendrar
glóir kjötmetið
Sækir barn í
skepnu lifur
opnast kæfuhlið
kviknar hratt
í kviði sonar
kæfuógeðið
Opnast á drengnum andlitið
Myndar ósvikið kæfuhlið
faðir af kæfu fjarlægir
slímhjúp og frelsar kjötmetið
þrútna jaxlar
þrútna leggir
þrútna úlnliðir
súrnar húð
og rauðir flekkir
þekja andlitið
soðnar tannhold
kjúkur bresta
ökklar hrökkv´úr lið
Á enni krauma
graftrar-vörtur
slíkt er óþolið
Opnast á drengnum andlitið
Myndar ósvikið kæfuhlið
faðir af kæfu fjarlægir
slímhjúp og frelsar kjötmetið